Undankeppni EM taflfélaga í netskák – kvennaflokki fer fram um helgina. Tvö íslensk skákfélög, Skákfélagið Huginn og Skákdeild Fjölnis, taka þátt í mótinu. Flestir íslensku fulltrúanna tefla í húsnæði Skákskóla Íslands.

Flestar sterkustu skákkonur Evrópu taka þátt í mótinu!

Lið Hugins sem teflir í c-riðli skipa

  1. Lenka Ptácníková (2130)
  2. Hallgerður Helga Þorsteinsóttir (2009)
  3. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1935)
  4. Elsa María Kristínardóttir (1837)
  5. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (1984)

Lið Hugins er sjöunda sterkasta af átta liðum. Sterkasta liðið er hið rússneska UGRA en það skipa meðal annars rússnesku landsliðskonurnar Natalija Pogonina og Olga Gyria.

Lið Fjölnis teflir í b-riðli og er það veikast átta liða. Lið Fjölnis skipa

  1. Tinna Kristín Finnbogadóttir (1843)
  2. Hrund Hauksdóttir (1819)
  3. Lisseth Acevedo Mendez (1845)
  4. Nansý Davíðsdóttir (1895)
  5. Sigríður Björg Helgadóttir (1641)

Í f-riðli tekur meðal Kyiv-skákklúbburinn þátt og fyrir þann klúbb tefla meðal annars Muzychuk-systurnar, Maria og Anna sem og Anna Ushenina.

Tvö efstu liðin úr hverjum flokki komast í úrslitakeppni sem fram fer á mánu- og þriðjudag.

Nánar um mótið á heimasíðu ECU.

- Auglýsing -