Útsláttarkeppni Íslandsmótsins í atskák fer fram í dag og hefst kl. 13 með átta manna úrslitum. Bein lýsing í umsjón Björns Ívars og Ingvars Þórs hefst skömmu fyrir umferð og fylgja þeir keppninni til enda.
Skáksjónvarpið
Verður virkt rétt fyrir kl. 13:00
Pörun í átta manna úrslit
Í átta manna úrslitum mætast:
- Alexander Oliver Mai – Guðmundur Kjartansson
- Hjörvar Steinn Grétarsson – Vignir Vatnar Stefánsson
- Bragi Þorfinnsson – Jóhann Hjartarson
- Arnar Gunnarsson – Davíð Kjartansson
Í úrslitum verður tefldar tvær skákir 10+3. Verði jafnt verður tefld bráðabanaskák þar sem hvítur fær 5 mínútur en svartur 4 mínútur en dugar jafntefli. Sá sem hefur lægra rásnúmer ræður lit.
Áætlað er að undanúrslit hefjast um kl. 14 og úrslitin um kl. 15. Allt getur þó hnikrast til komi til bráðabana.
Aukaverðlaunin
Búið er að taka saman hverjir eru aukaverðlaunahafar sem fá 10.000 kr. úttekt hjá Heimiltækjum eða Tölvulistanum.
Aukaverðlaunarhafar eru sem hér segir:
- Kvennaflokkur – Lenka Ptácníková
- Öldungaflokkur (+65) – Áskell Örn Kárason
- Unglingaflokkur (u16) – Benedikt Briem
- Unglingaflokkur (u12) – Guðrún Fanney Briem
- Stigaverðlaun (2001-2200) – Alexander Oliver Mai
- Undir 2000 – Gunnar Freyr Rúnarsson
- Auglýsing -















