Keppendur á mótinu. Nakamura er staðin upp.

Undankeppni Airthings Masters lauk í gær á Chess24 en mótið er annað mótið í nýrri mótasyrpu Magnúsar Carlsen á Chess24. Magnús sjálfur, Wesley So og Hikaru Nakamura urðu efstir og jafnir. Alexander Grischuk og Anish Giri sátu eftir með sárt ennið – tókst ekki að komast í úrslitakeppnina.

Í átta manna úrslitum mætast: Carlsen-Dubov, MVL-So, Nakamura-Aronian og Radjabov-Nepomniachtchi.

Teflld eru tvö fjögurra skáka atskákeinvígi (15-10). Það fyrra í dag og það síðara á morgun Verði jafntefli verður teflt til þrautar með skemmri umhugsunartíma á morgun.

Taflmennskan hefst kl. 14 alla daga.

Sjá nánar á Chess24.

- Auglýsing -