Stefán Bergsson að tafli. í Parcin. Mynd Páll Þórsson.

Alþjóðlega opna mótinu í Paracin í Serbíu lauk í dag. Reykjavíkurmeistarinn, Stefán Bergsson (2192), átti slæman miðkafla en sýndi úr hverju hann var gerður þegar hann vann tvær skákdrottningar í lokaumferðunum tveimur á glæsilegan hátt. Stefán hlaut 4,5 vinninga eða 50% vinningshlutfall. Hann lækkar um 21 skákstig fyrir frammistöðuna.

Í viðtali við Skák.is sagðist Stefán var þolanlega ánægður með eigin taflmennsku – sérstaklega í lokaumferðunum tveimur. Hann sagðist hlakka til þátttöku í mótinu sem hefst á morgun. Aðstæður í Paracin séu góðar og hann mælir með þessu móti fyrir skákáhugamenn í framtíðinni.

Í lokaða mótinu er hann þriðji stigalægsti keppandinn í 10 manna flokki með meðalstigin 2243 skákstig. Þar eru einnig tefldar 9 umferðir á 7 dögum.

Allt um það mót á heimasíðu þess.

Páll Þórsson (1684), sem tefldi í b-flokki, hlaut 5 vinninga í 9 skákum. Hann hækkar um 31 skákstig fyrir frammistöðu sína.

- Auglýsing -