Frá áskorendamótinu. Maria Emelianova/Chess.com.

Í gær barst frétt þess efnis að áskorendamótið í skák haldi áfram eftir 389 hlé í Katrínarborg í Rússlandi þann 19. apríl nk. Mótinu var hætt skyndilega þegar 7 umferðum af 14 var lokið. Lesa má meira um þá atburðarrás í grein í Þjóðmálum.

Reynt er að halda síðari hlutann í nóvember sl. Sú tilraun fór út um þúfur  vegna þess að Kínverjarnir Wang Hao og Ding Liren fengu ekki ferðaleyfi frá Kína auk þess sem faraldurinn var þá víða í miklum vexti. Nú mun vera búið að tryggja það að Kínverjarnir sem og aðrir keppendur komist til Katrínarborgar.

Maxime Vachier-Lagrave og Ian Nepomiachtchi eru efstir og jafnir með 4½ vinning í hálfleik. Sex keppendur hafa 3½ vinning svo ljóst er að mikið getur gengið í síðari hálfleiknum.

Röð Skákmaður Vinn.
1 Maxime Vachier-Lagrave 2767
2 Ian Nepomniachtchi 2774
3 Fabiano Caruana 2842
4 Anish Giri 2763
5 Wang Hao 2762
6 Alexander Grischuk 2777
7 Liren Ding 2805
8 Kirill Alekseenko 2698

 

Sigurvegarinn mætir Magnúsi Carlsen í heimsmeistaraeinvígi sem fram fer í Dubai nóvember-desember nk.

Nánar á heimasíðu FIDE.

- Auglýsing -