Shirov í þungum þönkum á móti Erni Leó. Mynd: Lars-Henrik Bech Hansen

Eitt helsta aðdráttarafl opinna móta er að þá fá „minni spámenn“ tækifæri á að tefla við stórstjörnur. Í gær fékk Alexander Oliver Mai (1966) tækifæri á að tefla við Baadur Jobava (2666) og þurfti reyndar að sætta sig við tap. Í dag fá feðgarnir Jóhann Ingvason (2189) og Örn Leó Jóhannsson (2196) báðir slík tækifæri. Sonurinn teflir við Alexei Shirov (2637) en pabbinn mætir Simen Agdestein (2581). Auk feðganna er Jóhann Hjartarson einnig í beinni útsendingu en hann teflir við Danann Nicolai Kistrup (2154) í fyrri skák dagsins.

Jóhann Ingvason og Simen Agdestein. Mynd: Poul Jacobsen.

Í dag eru tefldar tvær umferðir á Xtracon Chess Open. Fyrri umferðin hófst kl. 8 og sú síðari hefst kl. 15.

Úrslit íslensku keppendanna í gær voru annars öll samkvæmt bókinni í gær. Hinir stigahærri unnu en hinir stigalægri töpuðu. Enda var stigamunurinn mikill.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2536) tapaði fyrir Tékkanum Vit Kratochvil (2233) í 2. umferð á opna tékkneska mótinu. Hannes hefur háflan vinning.

FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2277) gerði jafntefli við enska skákmanninn John Fraser (1906) í fimmtu umferð alþóðlegs móts á Krít í gær. Vignir hefur 3 vinninga.

Í öðrum skákfréttum er það helst að ofurmótið í Biel hefst í dag. Þar eru Magnus Carlsen (2843) og Shakhriyar Mamedyarov (2808) meðel keppenda. Taflmennskan hefst kl. 12.

Lokaumferð Dortmund-mótsins fer fram í dag. Ian Nepomniachchi (2757) er efstur fyrir lokaumferðina sem hefst kl. 11:15.

- Auglýsing -