Það gekk mikið á 3. umferð ofurmótsins í Biel í gær. Mest gekk á í skák heimsmeistarans Magnúsar Carlsen (2842) og Peter Svidler (2753). Heimsmeistarinn fórnaði tvívegis manni. Fyrst í 15. leik, sem Rússinn mátti ekki þiggja, og svo í 17. leik sem Svidler þáði. Eftir 26 leiki þráleiku þeir.
Shakhriyar Mamedyarov (2801) vann góðan sigur á Maxime Vachier-Lagrave (2779) og virðist vera í afar góðu formi þessa dagana. Aserinn hefur 6-1 á móti MVL í kappskák. Magnús og Shakh eru efstir og jafnir með 2½ vinning.
David Navara (2741) vann Nico Georgiadis (2526).
Nánar á Chess.com. Þar eru skákirnar skýrðar. Skákir gærdagsins má skoða hér að neðan.
Fjórða umferð hefst kl. 12. Þá teflir Carlsen við Georgiadis og Mamedyarov við Svidler.
- Auglýsing -



















