Aftur til framtíðar Hjörvar Steinn, Hannes Hlífar, Vignir Vatnar, Halldór Grétar og Hlíðar Þór við taflið á Íslandsmóti skákfélaga 2019-2020. — Morgunblaðið/Ómar Óskarsson

Íslandsmóti skákfélaga fyrir tímabilið 2019-2020 hefði átt að ljúka fyrir rösklega ári en var slegið á frest í byrjun Covid-faraldursins. Stjórn Skáksambands Íslands tók þá ákvörðun að ljúka seinni hluta keppninnar um þessa helgi; sjötta umferðin hófst í gær en sú níunda og síðasta fer fram á morgun í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur og Skáksambandsins í Faxafeni. Tvær umferðir verða tefldar í dag. Keppnin fer einungis fram í fyrstu og annarri deild en í keppni í þriðju og fjórðu deild hefur verið aflýst og staðan eftir fyrri hluta látin gilda.

Í raun og veru var engin góð lausn til varðandi framhaldið en vonandi verður þessi fremur skrykkjótta byrjun ávísun á kröftuga viðspyrnu í skáklífinu og sjást þess þegar ýmis merki. Það var ýmislegt undir hjá keppendum, t.d. getur Vignir Vatnar Stefánsson náð lokaáfanga sínum að alþjóðlegum meistaratitli.

Staðan í 1. deild eftir fyrri hlutann var þessi:

1. Víkingaklúbburinn 32 v. (af 40) 2. SSON 30 v. 3. Huginn 25½ v. 4. Taflfélag Garðabæjar 22 v. 5.-6. Fjölnir og TR (a-sveit) 20 v. 7. Breiðablik, Borgarnes og Reykjanes 18 v. 8. SA 17½ v. 9.-10. Víkingaklúbbur (b-sveit) og TR b-sveit) 7½ v.

Í 2. deild var skákdeild KR í efsta sæti með 18 vinninga af 24 mögulegum en í 2.-3. sæti komu Taflfélag Vestmannaeyja og b-sveit SA með 16 vinninga, Huginn, b-sveit, er svo í 4. sæti með 12 vinninga. Fjögur efstu liðin færast í 1. deild.

Sú grundvallarbreyting verður nú gerð á Íslandsmóti skákfélaga eftir þetta tímabil að við tekur nýstofnuð efsta deild sex skákfélaga sem tefla munu tvöfalda umferð eða samtals tíu umferðir. Ekki slæmt fyrirkomulag að margra mati en hins vegar hefur ekki verið tekið á því fyrirkomulagi að leyfa tvö lið frá sama félagi í efstu deild.

Norðanmenn minnast Gylfa

Um hvítasunnuhelgina, dagana 21.-24. maí nk., standa Skákfélag Akureyrar og velunnarar ýmsir fyrir minningarmóti um Gylfa Þórhallsson. Á Íslandsmóti skákfélaga settu fáir einstaklingar meiri svip á þá keppni. Hann var meðal liðsmanna SA í fyrstu viðureign SA gegn TR haustið 1974 og missti ekki úr viðureign með sínu félagi áratugum saman. Áskell Örn Kárason, Halldór Brynjar Halldórsson, Rúnar Sigurpálsson og Smári Ólafsson hafa skrifað skemmtilegar greinar um Gylfa í rit sem gefið verður út í tengslum við mótið. Ég fann nokkur dæmi úr skákum Gylfa frá „deildarkeppninni“ eins og Íslandsmótið var lengi kallað:

Íslandsmót skákfélaga 1994:

Gylfi Þórhallsson – Jón G. Viðarsson

Gylfi hafði fórnað skiptamun og lék nú:

23 c4! Kc8 24. cxd5 a5

Það virðist nokkurt hald í þessum leik en nú kom. …

 

25. Bg4! Hhd8

Eða 25. … axb4 26. dxc6 og vinnur.

26. dxc6

– og svartur gafst upp.

Íslandsmót skákfélaga 2001:

Gylfi Þórhallsson – Hrafn Loftsson

26. Hxe5! dxe5 27. Df7+ Kh8 28. Dxe7!

– og svartur gafst upp, 28. … Hxe7 er svarað með 29. Hf8 mát.

 

 

Íslandsmót skákfélaga 2013:

Gylfi Þórhallsson – Daði Ómarsson

23. f6! Rgxf6 24. Rd4!

Stefnir á f5-reitinn.

24. … He5 25. Rf5 Hxf5 26. Dxf5 Re5 27. Rd5! Bxd5 28. cxd5 He8 29. Be4 He7 30. h4! De8 31. Dh7+

– og svartur gafst upp því að eftir 31. … Kf8 32. hxg5 er staðan vonlaus.

Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 15. maí 2021. 

- Auglýsing -