Vignir vann Adam í lokaumferðinni. Mynd: Ríkharður Sveinsson.

Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), vann öruggan sigur á þriðja mótinu í Brim-mótaröðinni sem lauk um helgina. Vignir hlaut 6½ vinning í sjö skákum og varð heilum vinningi fyrir ofan kollega sinn úr stétt alþjóðlegra meistara, Davíð Kjartansson (2328).

Alexander Oliver Mai (2078), Lenka Ptácníková (2098) og Haraldur Haraldsson (1900) urðu jöfn í 3.-5. sæti með 5 vinninga.

Lokstöðu mótsins má finna á Chess-Results. 

Arnljótur var í banastuði í hraðskákinni. Mynd: RS

Í gær var teflt hraðskákmót þriðja mótsins. Þar urðu Arnljótur Sigurðsson og Vignir Vatnar efstir og jafnir með 7½ vinning í 9 skákum. Frábær frammistaða hjá Arnljóti. Guðni Stefán Pétursson (2099) varð þriðji með 7 vinninga.

Lokastöðuna á finna á Chess-Results

Heimasíða TR.

- Auglýsing -