Vignir og Davíð eru í 1. og 2. sæti. Mynd Ríkharður Sveinsson.

Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), er efstur með með 5½ vinning að loknum sex umferð á þriðja mótið í Brim-mótaröðinni. Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson (2328) er annar með 5 vinninga. Í 3.-4. sæti eru Adam Omarsson (1503), sem hefur komið mjög á óvart með frábærri frammistöðu og Alexander Oliver Mai (2078).

Stöðu mótsins má finna á Chess-Results.

Adam Omarsson hefur átt frábært mót. Mynd: RS

Lokaumferðin hefst kl. 11. Þá mætast Vignir og Adam og Davíð og Alex.

Taflfélag Reykjavíkur minnir á hraðskákmót, sem er öllum opið, og hefst kl. 16:00.

Heimasíða TR.

- Auglýsing -