Skáksamband Íslands leitar að starfsfólki fyrir EM einstaklinga – Kviku Reykjavíkurskákmótið sem fram fer í 26. ágúst – 5. september nk. í Hótel Natura (áður Loftleiðum).

Rétt er að taka fram þó að tímakaupið sé alls ekki hátt að á móti fylgir gleðin og ánægjan við að taka þátt í í einum stærsta, sterkasta og fjölmennasta skákviðburði sem haldinn hefur verið hérlendis!

Starfsmenn eru að sjálfögðu boðnir í lokahóf mótsins.

Hægt er að sækja um störf með því að fylla út í meðfylgjandi form. 

- Auglýsing -