Magnus Carlsen (2842) og Shakhriyar Mamedyarov (2801) eru efstir og jafnir með 3½ vinning í hálfleik (5 umferðir) á ofurmótinu í Biel. Þeir tefldu í gær og þrátt fyrir að Magnús reyndi sitt besta tókst honum ekki að leggja Aserann brosmilda sem hélt nokkuð örugglega jafntefli.
Maxime Vachier-Lagrave (2789) vann sínu fyrstu skák þegar hann lagði heimamanninn Nico Georgiadis (2527) að velli. Peter Svidler (2760) og David Navara (2727) gerðu jafntefi. Svidler er þriðji með 3 vinninga.
Seinni hálfleikur hefst í dag með sjöttu umferð. Magnús teflir við Navara en Mamedyarov við Georgidis (2527).
Nánar á Chess.com.
- Auglýsing -















