Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2517), hóf í gær taflmennsku á alþjóðlegu móti í Budejovice í Tékklandi. Um er að ræða fyrsta mótið af þremur sem Hannes teflir á í Tékklandi. Í flokki Hannesar tefla 10 skákmenn, allir við alla. Meðalstitin eru 2440 og er Hannes þriðji í stigaröð keppenda.
Hannes gerði jafntefli við tékkneska alþjóðlega meistarann Tomas Kraus (2459) í fyrstu umferð. Önnur umferð fer fram í dag og þá teflir Hannes við austurríska alþjóðlega meistarann Dominik Horvath (2447).
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Chess-Results
- Auglýsing -















