Símon Þórhallsson heldur áfram sigurgöngu sinni í áskorendaflokki Skákþings Íslands. Í dag lagði hann félaga sinn í Skákfélagi Akureyrar, Stefán Bergsson í snaggaralegri skák.
Eftir umferð dagsins hefur Símon vinningsforskot á næstu menn. Kíkjum á gang mála.

Símon og Stefán mættust eins og áður sagði á efsta borði. Eftir hvasst Najdorf afbrigði blés Stefán til sóknar með peðsfórn. Í miðjum flækjum fann Símon gríðarlega snaggarlega leið til að véla drottninguna af andstæðingi sínum. Þetta réði úrslitum.
Skákin er skýrð hér:

Á öðru borði var einnig hörð teoría í gangi og einnig Najdorf afbrigðið á borðinu. Alexander Oliver Mai vill væntanlega komast aftur í landsliðsflokk en hann fékk smjörþef af taflmennsku þar ekki alls fyrir löngu. Birkir Ísak Jóhannsson þáði mannsfórn Alexanders og reyna að standa hana af sér. Taldi hann sjálfur að staðan væri erfið en honum tókst verkefnið og hélt manninum og vann endataflið eftir flókna skák.

Fyrsta skákin til að klárast var laglegur sigur Péturs Pálma Harðarsonar á Guðna Stefáni Péturssyni á þriðja borði. Pétur Pálmi virtist vel vopnum búinn gegn Grunfeldsvörn Guðna og virtist fá yfirburðatafl sem hann gaf ekki frá sér og sigldi punkintum heim.

Þeir Taflfélagsmenn Gauti Páll Jónsson og Ingvar Wu Skarphéðinsson tefldu sannkallaða rúlluskauta-skák. Ritstjóri þarf ögn meiri orku til að átta sig á hvað var í gangi í skákinni. Það var frumleg byrjun, miklar fórnir, vaktir upp riddarar, hættuleg frípeð og allur regnboginn. Kannski var jafntefli bara sanngjarnt að lokum!
Gauti lýsti taflmennsku sinni í þessari skák á þennan máta:

Sjón er sögu ríkari:

Síðasta skák á sýningarborði var slagur fyrrum félaga úr Taflfélagi Kópavogs. Þeir félagar Einar Hjalti Jensson og Hrannar Baldursson hafa vafalítið teflt fleiri en eina og fleiri en tvær skákir í gegnum tíðina.
Í þetta skiptið sá Einar lengra í flækjunum.
Úrslit á neðri borðum voru meira og minni eftir bókinni frægu.



Sjötta umferð verður tefld á morgun miðvikudag og hefst klukkan 18:00 eins og flestar umferðir.
Birkir Ísak hefur hvítt á Símon og Pétur Pálmi fær hvítt á Einar Hjalta.
- Heimasíða Skákþings Íslands
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast 18:00)
- Skákir mótsins (fyrstu 3. umferðir)

















