Þriðji keppnisdagur í Uppsölum kláraðist í gær. Fjorum umferðum er lokið í IM-flokkunum en þremur umferðum er lokið í opna flokki.
Opinn flokkur:
Förum yfir árangur Íslendingana og hefjum leik í opna flokknum. Fjórir Íslendingar höfðu fullt hús eftir tvær umferðir. Enginn þeirra vann í þriðju umferð en heilt yfir var þetta góð umferð hjá okkar fólki.
Hörður Aron Hauksson (1843) tefldi með svörtu á efsta borði og lét enga Svíagrýlu trufla sig og hélt jöfnu gegn Lars Persson (2050) þrátt fyrir yfir 200 elóstiga mun.
Á öðru borði þurfti Liss Acevedo Mendez (1825) að lúta í dúk í fyrsta skipti en hún tefldi upp fyrir sig gegn Joar Östlund (2045) sem reyndist of sterkur í þetta skiptið.
Á þriðja borði gerði Tinna Kristín Finnbogadóttir (1821) jafntefli gegn Jonas Arvidsson (1935)
Jóhann Arnar Finnsson (1818) tefldi einnig upp fyrir sig eins og allir Íslendingarnir með fullt hús. Hann mætti Johnny Säterli (1910) og beið lægri hlut.

Kristján Dagur Jónsson (1706) vann sína skák gegn Tage Johansson (1842). Andstæðingur Kristjáns var blindur og naut aðstoðar hliðarborðs þar sem hann gat þreifað á mönnunum. Þessi háttur er jafnan hafður með blinda keppendur og sveit blindra á Ólympíuskákmótum hefur sama hátt þegar þeir keppa.

Loks tapaði Jón Úlfur Halldórsson (0) gegn Häkan Lönsjö (1556). Meirihluti íslensku keppendanna eru í seilingarfjarlægð við efstu menn.
IM-flokkur I
Hilmir Freyr Heimisson (2309) hefur ekki náð sér á strik og sætti sig við jafntefli í dag við hina listrænu kærustu stórmeistarans Mikhail Marin, Maríu Yugínu (1974). Segja má að jafnteflið hafi á margan hátt verið listrænt. 30 leikja jafnteflisreglan er við gildi og því þarf að endurtaka sömu stöðuna þrisvar sinnum til að mega semja fyrir þann leikjafjölda. Einhvern veginn tókst keppendum að finna þegjandi samþykki fyrir þrefaldri endurtekningu á stöðunni!
IM-flokkur II
Í hinum IM-flokknum gekk okkar keppendum vel.
Dagur Ragnarsson (2394) þurfti að hafa vel fyrir hlutunum en hann vann vel fyrir jafntefli gegn stórmeistaranum Thomas Ernst (2310). Ernst þessi er e.t.v. hvað þekktastur á klakanum fyrir að hafa verið á öfugum enda á allt að því goðsagnarkenndri flengingu Gylfa heitins Þórhallssonar í Sikileyjarvörninni, skák sem er ein af gullkornum íslenskrar skáksögu.
Loks vann Vignir Vatnar Stefánsson (2371) vinnusigur á Svíanum Kim Nygren (2232). Nygren þessi er einstaklega brögðóttur en greinarhöfundur tefldi við hann árið 2004 á lokuðu móti í Gausdal og kynntist honum aðeins þar. Nygren er háll sem áll og er ekki allur þar sem hann er séður og sigur Vignis einstaklega góður sem fyrr!
Vignir virðist vera að stimpla sig inn sem skákmaður með styrkleika yfir 2400 skákstigum og hann heldur því vonandi áfram og bætir bara í!
Einföld umferð verður í báðum flokkunum á morgun.
- Úrslit í opnum flokki
- Úrslit í IM flokki I (Hilmir)
- Úrslit í IM flokki II (Vignir og Dagur)
- IM flokkur II á Chess24
- IM flokkur I á Chess24



















