Það er eiginlega orðið hálf snúið að finna lýsingarorð til að lýsa árangri Símons Þórhallssonar (2199) í áskorendaflokki Skákþings Íslands. Hann leiðir sem fyrr og enn með fullt hús, sjö vinningar í sjö skákum! Greinarhöfundur hitti Símon fyrr í sumar á ferðalagi til Akureyrar. Þar lýsti hann því yfir að framundan væri áskorendaflokkurinn og honum hlakkaði til, þetta væri fyrsta mót í langan tíma þar sem hann tefldi og væri í fríi! Það má vera að Símon þurfi að gera meira af því!

Símon tefldi nánast gallalausa skák gegn Pétri Pálma Harðarssyni (2084) í umferð gærdagsins. Nýjung í skákinni kom ekki fyrr en í 21. leik hjá Símoni og spurning hversu djúpt hann þekki stöðuna? Eini leikurinn sem má setja út á er 22.f4 en tölvuforritin vilja meina að svartur eigi þar að drepa á f4 og fá e5 reitinn fyrir mann og mögulega skálínu fyrir biskupinn. Eftir 22…e4? virðist hvítur vera með hartnær strategískt unnið tafl og Símon gaf ekki fleiri færi í skákinni og sigldi henni heim eins og stórmeistari.
Enn einn sannfærandi sigurinn hjá Símoni og hann gæti líklegast sleppt því að mæta til leiks í síðustu tvær umferðirnar og ætti samt að enda í tveimur efstu sætunum sem gefa sætið eftirsótta í Landsliðsflokki.

Reykjavíkurmeistarinn fyrrverandi, Stefán Steingrímur Bergsson (2158) vissi að hann gat ekki vanmetið andstæðing sinn, Benedikt Briem (1858). Benedikt lagði í síðustu umferð Gauta Pál Jónsson í vel tefldi skák og er í mikilli framför.
Stefán var ákveðinn í byrjuninni og fórnaði peði, fórn sem líklegast átti rétt á sér. Síðar lagði Stefán mikið á stöðuna og treysti á sóknarmöguleika hvítu stöðunnar.
Ef svartur teflir vel hér og hrekur hvítu sóknina er ljóst að hrókurinn á g3 er algjörlega úti að aka og á ekki heimankvæmt úr sókninni. Líklegast hefði 18…Kh7 verið best en staðan þó í miklu ójafnvægi. Þess í stað var Benedikt of gráðugur með 18…Dxa2?!
Stefán tefldi sóknina nánast óhugnalega vel eftir það en missti þó af vinningi í 25. leik þar sem 25.Hb2!! virðist duga til vinnings, hrókurinn fer á d2 og ekki má taka út af skálínunni. Þess í stað kom leikur sem hleypti Benedikt inn í skákina….en þá fékk Stefán aftur einn séns og AÐEINS EINN séns!
25…b5? leit alveg þokkalega út á blaði en hér lék Stefán, líklegast leik mótsins!
26.Hb4!! já…..hrókur til Bjarni fjórir!
Ótrúlegt en satt tapa allir aðrir leikir! Hvítur verður að brjótast í gegn og til þess þarf að stjaka við biskupnum á f5. Hrókurinn hefur einfaldlega ekki getuna til þess og því þarf hann einfaldlega að víkja!
Svartur gat mögulega varist með 27…Had8 með því að gefa hrók til baka en eftir 27…De6? er hvítur með unnið tafl og Stefán landaði mikilvægum punkti.

Lenka Ptacnikova (2109) tefldi flotta sóknarskák gegn Alexander Oliver Mai (2090). Lenka tefldi Aljekínsvörnina frumlega og byggði svo upp skemmtilega sókn á kóngsvæng sem hreinlega óx og óx þar til Alexander fékk ekki rönd við reist.

Hrannar Baldursson (2148) tefldi að því er virtist allt of hratt gegn Birki Ísaki Jóhannssyni (2052). Greinarhöfundur hjó sérstaklega eftir því að aðeins 35 sekúndur fóru í þessa erfiðu stöðu:
Niðurstaðan var arfaslakur leikur 13.Rg3? og hvíta staðan mjög erfið eftir 13…d4.
Birkir saumaði í kjölfarið jafnt og þétt að hvítu stöðunni og var kominn með mátnet í lokin. Vel tefld skák hjá Birki.

Á síðasta sýningarborðinu fékk hinn ungi Ingvar Wu Skarphéðinsson (1616) góða sýnikennslu frá alþjóðlega meistaranum Einari Hjalta Jenssyni (2349) í því hvernig á að stjórna línu og opna hana eftir eigin hentisemi. Takið eftir hvernig Einar notfærir sér a-línuna í skákinni!

Af öðrum úrslitum var þetta helst, Mikael Bjarki Heiðarsson (1473) sýndi hvað ungu Blikarnir eru hættulegir og lagði Jóhönnu Björgu Jóhannsdóttur (2019). Jóhann Jónsson (1723) vann góðan sigur á hinum þrautreynda Eiríki Björnssyni (1972). Önnur úrslit meira og minna eftir bókinni.

Símon er nánast með pálmann í höndunum en baráttan um hitt sætið í landsliðsflokki verður grjóthörð, Stefán stendur þó best að vígi fyrir lokaátökin.

Í áttundu umferð er komið að Benedikt Briem að reyna sig gegn Símon Þórhallssyni. Á öðru borði stýrir Lenka Ptacnikova hvítu mönnunum gegn Stefáni Bergssyni. Pétur Pálmi fær Gauta Pál og Birkir Ísak mætir Jóhanni Jónssyni.
- Heimasíða Skákþings Íslands
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast 18:00)
- Skákir mótsins (fyrstu 6. umferðir)


















