Kristján Dagur Jónsson (1706) hélt áfram góðu gengi í opna flokknum í Uppsölum og vann í dag sína fjórðu skák í röð. Í þetta skiptið lá Victor Lilliehöök (1476). Kristján hefur 4 vinninga og er efstur Íslendinga og jafn í 4. sæti í flokknum.
Hörður Aron Hauksson (1843) gerði gott jafntefli við Almic Kicin (2161) og hefur 3 vinninga en Tinna Kristín Finnbogadóttir (1821) skaut sér upp í 3,5 vinning með sigri á Ander Moborn (2019).

Hrund Hauksdóttir (1823) og Jóhann Arnar Finnsson (1818) hafa bæði 2,5 vinning en Jóhann tapaði fyrir Jonas Arvidsson (1935) á meðan Hrund lagði Lars Yngveson (0).
Lisseth Acevdeo Mendez (1825) tapaði fyrir Arvid Fridman (0) og hefur tvo vinninga og svo vann Jón Úlfur Hafþórsson (0) sína fyrstu skák á sínu fyrsta kappskákmóti. Hann vann sigur á Gabriellu Antonic Svensson. Hann hefur 1,5 vinning.


IM-flokkur I
Hilmir Freyr Heimisson (2309) tefldi tvær skákir í dag og virðist hafa náð að rifja upp mannganginn! Hilmir vann báðar sína skákir í dag en reyndar áttar ritstjóri sig ekki fyllilega á lokastöðunni í seinni skákinni. Ef til vill var um tímahrak að ræða?
Alþjóðlegi meistarinn Jan Johansson (2306) lá í fyrri skákinni.
Í seinni skákinni var það CM Edvin Trost (2240) sem laut í dúk.
IM-flokkur II
Í hinum IM-flokknum Vignir Vatnar Stefánsson í banastuði og vann tvo glæsilegra sigra. Í fyrri skákinni vann hann gegn Alexander Hart (2032) og bauð upp á „Fréttablaðsleik“ og í seinni skákinni vélaði hann niður stórmeistarann Thomas Ernst (2310).
Dagur Ragnarsson (2394) tapaði fyrri skák sinni en gerði jafntefli í seinni skákinni.
Vignir er efstur í flokknum ásamt úkraínska alþjóðlega meistaranum Konstantin Borsuk.
Einföld umferð verður í báðum flokkum á morgun, 6. umferð í opna og 8. umferð í lokuðu flokkunum.
- Úrslit í opnum flokki
- Úrslit í IM flokki I (Hilmir)
- Úrslit í IM flokki II (Vignir og Dagur)
- IM flokkur II á Chess24
- IM flokkur I á Chess24


















