Þrátt fyrir að missa niður hálfan punkt í umferð kvöldsins er Símon Þórhallsson öruggur sigurvegari í áskorendaflokki. Þessi sigur tryggir honum sæti í Landsliðsflokki. Mikil spenna verður í lokaumferðinni þegar keppt verður um hitt sætið í flokknum.

Benedikt Briem varð fyrstur til að tapa ekki fyrir Símoni. Lengi var miðtafl sem virtist í jafnvægi með alla þungu mennina á borðinu. Símon fékk hróksendatafl sem hægt var að pressa en Benedikt var vandanum vaxinn og varðist.

Lenka Ptacnikova kom sér í góða stöðu með sigri á Stefáni Bergssyni á öðru borði. Flókið miðtafl þar sem Lenka komst undan manni undir úr flækjunum og kemur sér í séns í lokaumferðinni.

Í jafnri stöðu sá Gauti Páll Jónsson peðsvinning í hyllingum gegn Pétri Pálma Harðarsyni. Það vildi ekki betur en svo að Pétur Pálmi átti mát í tveimur leikjum eftir svartur vann peðið!

Jóhann Jónsson með svart gaf frá sér biskupaparið full auðveldlega með svörtu og Birkir Ísak fékk stöðulega yfirburði sem hann lét ekki af hendi. Vinninginn þurfti þó að sækja í endataflinu en Birkir hafði sigurinn.

Einar Hjalti Jensson bauð upp á „gamla-kalla-byrjun“ eins og ég kallaði slík uppskipti á drottningum svona snemma tafls. Við Einar erum á svipuðum aldri og það viðurkennist hérmeð að sem gamall kall samþykki ég slíka taflmennsku gegn ungum og efnilegum skákmanni. Gunnar Erik Guðmundsson fékk kennslustund í stöðutýpu sem hann fær væntanlega ekki oft upp og Einar hafði sigurinn á reynslunni.

Önnur úrslit voru nokkurn veginn eftir bókinni.

Símon eins og áður sagði sigurvegari og í veglegum stigagróða. Þrír skákmenn eru næstir með 6 vinninga.

Lokaumferðin verður æsispennandi. Lenka og Pétur Pálmi mætast í algjörri lykilskák. Birkir Ísak þarf sigur með svörtu gegn Benedikt Briem. Stefán er líklega úr leik með 5,5 vinning nema allt gangi upp og jafntefli verði á öðru borði.

Lokaumferð á morgun klukkan 13:00!

- Auglýsing -