Hilmir Freyr Heimisson hefur aldeilis rétt úr kútnum eftir erfiða byrjun og unnið þrjár skákir í röð! Vignir eru á góðu róli í sínum flokki. Áttunda umferð fór fram í dag í lokuðu flokkunum og sjötta umferð í opna flokknum í Uppsölum í Svíþjóð.
Opinn flokkur:
Hefjum leik í opna flokknum.
Kristján Dagur Jónsson (1706) kom aðeins niður á jörðina eftir fluggír um miðbik móts. Hann tapaði fyrir Svíanum Oscar Jönsson (1990). Kristján hefur 4 vinninga eftir tapið og er efstu Íslendingana ásamt Herði Aroni Hauksson (1843) sem lagði Oliver Nilsson (1752).
Tinna Kristín Finnbogadóttir (1821) tapaði sinni skák í dag gegn Johnny Säterli (1910) og hefur 3,5 vinning.
Lisseth Acevdeo Mendez (1825) kemur næst með 3 vinninga eftir sig á Matija Sakic (1474).
Jóhann Arnar Finnsson (1818) og Hrund Hauksdóttir (1823) hafa 2,5 vinning. Jóhann tapaði fyrir Jan Peter Palmblad (2066) en Hrund tapaði fyrir Sandro Lacko (1691)
Jón Úlfur Hafþórsson (0) hefur svo 1,5 vinning en hann tapaði fyrir Anton Frank (1525)

IM-flokkur I
Hilmir Freyr Heimisson (2309) vann sína þriðju skák í röð er hann lagði Svían Adrian Soderstrom (2232). Svíinn blés til sóknar en peðsfórn hans leit ekki nógu vel út og Hilmir varðist sókn Svíans og klossmátaði hann svo gjörsamlega með smá „syðri-stormi“ á d3! Falleg lokastaða!

IM-flokkur II
Í hinum IM-flokknum vann Dagur Ragnarsson (2394) sigur á Torsten Limbach (1969) en Vignir Vatnar Stefánsson (2371) gerði jafntefli í sinni skák gegn William Olsson (2322)

Lokaumferðirnar fara fram á morgun.
- Úrslit í opnum flokki
- Úrslit í IM flokki I (Hilmir)
- Úrslit í IM flokki II (Vignir og Dagur)
- IM flokkur II á Chess24
- IM flokkur I á Chess24
















