Spennan í lokaumferð áskorendaflokks var mikil. Símon var öruggur með sæti í landsliðsflokki en nokkrir keppendur eygðu möguleika á seinna sætinu. Mikilvægasta skákin var á milli Lenku Ptacnikovu og Péturs Pálma Harðarson en þau voru jöfn í 2. sæti ásamt Birki Ísak fyrir lokaumferðina.

Einar Hjalti eygði veika von en til þess þurfti hann að treysta á hagstæð úrslit í öðrum skákum og leggja hinn funheita Símon Þórhallsson að velli. Úr varð þung baráttuskák. Símon var frumlegur í kóngstilfærslu til d7 en líklega átti Einar möguleika á að nýta sér það með bestu taflmennsku en þess í stað lék hann taflinu niður.

Ótrúlegt en satt þá er svartur með unnið tafl ef hann drepur á a2. Hvítur er einfaldlega mótspilslaus gegn þvi að svartur bæti stöðuna, …f4, …Hg3 o.s.frv.
Þess í stað lék Símon 31…Re2 og jafntefli varð niðurstaðan eftir dráp á a8 og þráskák á e2 og g3.
Flott loka niðurstaða hjá Símoni sem endar með 8 vinninga af 9 mögulegum, landsliðsflokkssæti og 38 elóstig í farartöskuna!

Mikilvægasta og mest spennandi skák umferðarinnar var þrímælalaust skák Lenku Ptacnikovu og Péturs Pálma Harðarsonar. Mjög líklega var landsliðsflokkssæti undir og því mikil taugaspenna hjá báðum keppendum.
Tefldur var kóngsindverji, hvasst afbrigði þar sem keppendur sækja á sitt hvorum vængnum. Hvítur þarf að brjótast í gegn og muna að „beygja til hægri“ áður en hann verður mát.
Spurning er hvort síðasti leikur svarts 10…a5 sé góður eða slæmur. Tölvan er ekki mikið á móti honum og stórmeistari hefur leikið honum, hinsvegar er það tilfinning undirritaðs að það hjálpi hvítum að brjótast í gegn á drottningarvæng og leikurinn sé því ekki vænlegur.
Úr varð allavega að hvíta drottningin komst inn og hvitur vann peð. Svartur var í sókn á kóngsvæng en nokkuð lokað þar. Svartur var þvingaður í einu tilraunina í stöðunni eftir vel útfærða skák hjá hvítum…
27…Bxh3 hlýtur að vera eini leikurinn og Pétur Pálmi lék honum. Í kjölfarið kom 28.gxh3 og 28…Dd7. Þá komu 3 slakir leikir í röð hjá Lenku. Fyrst…29.Rf2?!

Beta hefði verið að drepa riddarann á b6 og leika svo Hf2 og tefla með tvo menn fyrir hrók. 30.Rg4?

Og svo 31.hxg4?? þegar 31.fxg4 var nauðsynlegt.

Þetta opnar h-línuna og hvítur er meira og minna þvingað mát eða tapar liði. 31…Bf6 var góður og eftir 32.Hc1 er Pétur með „pálmann“ í höndunum ef hann finnur rétta leikinn…..

32…De7?? var ekki rétti leikurinn. Með 32…Hh7! hefði Pétur Pálmi farið langleiðina með að tryggja sæti sitt í Landsliðsflokki. Munur er sá að hvítur hefur tíma í Bf1-g2 núna en ef …Hh7 þá á svartur alltaf …Hh1+ og svo drottninguna á h-línuna með tempó. Grátleg mistök.
Í kjölfarið nýtti Lenka sér færið sem hún fékk og taugarnar fóru endanlega með Pétur Pálma þegar hann lék af sér manni en þá var hann kominn með mjög erfiða stöðu þar sem hvítur náði að verjast á kóngsvængnum.
Sannarlega taugastrekkjandi skák en Lenka hafði betur og vinnur sér þar með sæti í Landsliðsflokki!



















