Aserinn brosmildi, Shahkriyar Mamedyarov (2801) er í lykilstöðu á ofurmótinu í Biel. Hann hefur vinnings forskot á heimsmeistarann, Magnús Carlsen (2842), þegar aðeins tveimur umferðum er ólokið. Öllum skákum áttundu umferðar í gær lauk með jafntefli.
Níunda og næstsíðsta umferð hefst í dag og þá fær Magnús sitt tækifæri því að hann teflir við Shahk. Umferðin hefst kl. 12.
Nánar á Chess.com.
- Auglýsing -














