Carlsen vann Rapport. Mynd: Lennart Ootes.

Mikil spenna er á Norway Chess-mótinu að lokinni áttundu umferð sem fram fór í gær. Heimsmeistarinn, Magnus Carlsen (2855) vann forystusauðinn Richard Rapport (2760) og er nú aðeins hálfu stigi á eftir Ungverjanum. Alireza Firouzja (2754) hafði betur gegn Sergey Karjakin (2758) eftir bráðabana og Aryan Tari (2642) lagði áskorandann Ian Nepomniachtchi (2792) að velli.

Kerfið er þannig að tefld er ein kappskák. Verði jafnt verður tefld bránabanaskák (hraðskák). 3 stig eru gefin fyrir vinning í aðalskákinni, 1,5 stig fyrir sigur eftir bráðabana, 1 stig eftir tap í bráðabana.

Staðan

Nánar á Chess.com 

- Auglýsing -