Hjörvar er efstur á Haustmóti TR.

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2597) er efstur með fullt hús að lokinni fjórðu umferð Haustmóts TR sem fram fór á sunnudaginn. Hjörvar vann Dag Ragnarsson (2376) í frestaðri skák sem fram fór í gær. Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2383) er annar með 3½ vinning eftir sigur á Mikael Jóhanni Karlssyni (2067). Jón Árni Halldórsson (2103) er þriðji með 3 vinninga en lagði Sævar Bjarnason (2048) að velli

Fimmta umferð fer fram á morgun. Þá mætast meðal annars Hjörvar-Jón Árni og Vignir-Magnús Pálmi Örnólfsson (2211).

Opinn flokkur

Arnar Milutin Heiðarsson (1916), Jóhann H. Ragnarsson (1912) og Kristján Dagur Jónsson (1785) eru efstir og jafnir með 3½ vinning.

Þrír skákmenn hafa 3 vinninga. Þar á meðal Iðunn Helgadóttir (1243) sem vann landsliðskonuna Hrund Hauksdóttur (1803) á sunnudaginn.

Mótið á Chess-Results.

Heimasíða TR.

- Auglýsing -