Skákfélag Selfoss og nágrennis endaði í fimmta sæti með 10 stig á EM taflfélaga sem lauk í gær í Struga í Makedóníu eftir sigur í lokaumferðinni. Þetta er besti árangurs íslensks lið á EM síðan núverandi fyrirkomulag var tekið upp árið 2000. Frábær árangur hjá SSON.
Víkingaklúbburinn vann einnig í lokaumferðinni og endaði með 7 stig og í 20. sæti. Taflfélag Reykjavíkur tapaði og endaði í 24. sæti með 6 stig.

SSON van stórsigur á heimamönnum í sveitinni Prilep. Anton Demschenko, Mikhail Antipov, Semyon Lomasov og Dagur Arngrímsson unnu sínar skákir.

Demschenko og Lomasov stóðu sig best Selfyssinga en þeir hlutu báðir 5½ vinning í skákunum sjö. Nánari upplýsingar um árangur SSON-verja má finna hér.

Víkingaklúbburinn vann góðan 3½-2½ á enska klúbbnum Sussex Martlets. Tapani Sammalvuo, lánsmaðurinn Símon Þórhallsson og Guðni Stefán Pétursson unnu sínar skákir.

Lánsmaðurinn Símon stóð sig best Víkinga. Hlaut 5 vinninga í skákunum sjö og hækkar um 35 stig fyrir frammistöðu sína. Nánar upplýsingar um árangur Víkinga má finna hér.

TR tapaði með minnsta mun fyrir slóvensku sveitinni Maribor Poligram. Fimm skákum lauk með jafntefli en ein skák tapaðist.

Margeir Pétursson stóð sig best TR-inga. Hlaut 4½ vinning. Nánari upplýsingar árangur TR má finna hér.
















