Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland

Meistaramót Skákskóla Íslands 2021 – Ungmennameistaramót Íslands 2021 – U22 verður haldið dagana 17. – 19. desember. Teflt verður húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Íslandsmeistarinn tryggir sér sæti í keppni landsliðsflokks á Skákþingi Íslands.
Dagskrá:
umferð, kl. 18, föstudaginn 17. desember
umferð, kl. 19.30,föstudaginn 17. desember
umferð kl.: 11:00, laugardaginn, 18. desember
umferð kl.: 17:00, laugardaginn, 18. desember
umferð kl.: 11:00, sunnudaginn, 19. desember
umferð kl.: 17:00, sunnudaginn, 19. desember
Ekki verður hægt að taka hálfs vinnings yfirsetu á mótinu.
Mótið er opið öllum skákmönnum fæddum á bilinu 1999-2005. Jafnframt er yngri skákmönnum heimilt að taka þátt hafi þeir a.m.k. 1600 kappskákstig eða hafi verið meðal verðlaunahafa í flokkum í u12-u16 á Íslandsmót ungmenna 2021.
Teflt verður um Íslandsmeistaratitilinn verði menn jafnir að vinningum. Stig eru látin gilda um önnur sæti verði menn jafnir að vinningum.
Tímamörk í fyrstu tveimur umferðunum er 20+5 og 90+30 í seinni fjórum.
Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Mótið fer fram í Skáksambandi Íslands að Faxafeni 12. Skráning er til kl. 16, fimmtudaginn, 18. desember á Skák.is.
Þegar skáðir keppendur: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1GZdhkFqIH6HtYYncNXiL8AQuwrnToQNorr37X8OO-98/









