Unglingameistaramót Íslands (u22) – Meistaramót Skákskóla Íslands 2021

    0
    1178
    Hvenær:
    17. desember, 2021 @ 18:00 – 19. desember, 2021 @ 21:00
    2021-12-17T18:00:00-01:00
    2021-12-19T21:00:00-01:00
    Hvar:
    Skáksamband Íslands
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Unglingameistaramót Íslands (u22) - Meistaramót Skákskóla Íslands 2021 @ Skáksamband Íslands | Reykjavík | Ísland

    Meistaramót Skákskóla Íslands 2021 – Ungmennameistaramót Íslands 2021 – U22 verður haldið dagana 17. – 19. desember. Teflt verður húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Íslandsmeistarinn tryggir sér sæti í keppni landsliðsflokks á Skákþingi Íslands.

    Dagskrá:

    umferð, kl. 18, föstudaginn 17. desember
    umferð, kl. 19.30,föstudaginn 17. desember
    umferð kl.: 11:00, laugardaginn, 18. desember
    umferð kl.: 17:00, laugardaginn, 18. desember
    umferð kl.: 11:00, sunnudaginn, 19. desember
    umferð kl.: 17:00, sunnudaginn, 19. desember

    Ekki verður hægt að taka hálfs vinnings yfirsetu á mótinu.

    Mótið er opið öllum skákmönnum fæddum á bilinu 1999-2005. Jafnframt er yngri skákmönnum heimilt að taka þátt hafi þeir a.m.k. 1600 kappskákstig eða hafi verið meðal verðlaunahafa í flokkum í u12-u16 á Íslandsmót ungmenna 2021.

    Teflt verður um Íslandsmeistaratitilinn verði menn jafnir að vinningum. Stig eru látin gilda um önnur sæti verði menn jafnir að vinningum.

    Tímamörk í fyrstu tveimur umferðunum er 20+5 og 90+30 í seinni fjórum.

    Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

    Mótið fer fram í Skáksambandi Íslands að Faxafeni 12. Skráning er til kl. 16, fimmtudaginn, 18. desember á Skák.is.

    Þegar skáðir keppendur: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1GZdhkFqIH6HtYYncNXiL8AQuwrnToQNorr37X8OO-98/

    - Auglýsing -