Hjörvar Steinn að tafli fyrir Ísland.

Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577), vann serbneska stórmeistarann, Luka Budisavljevic (2508) örugglega í sjöundu umferð FIDE Grand Swiss-mótinu sem fram fór í gær. Hjörvar hafði svart og náði fljótt mun betra tafli með 17…b5! Sigurinn var svo innbyrtur öruggulega í 35 leikjum. Annar sannfærandi sigur Hjörvars í röð eftir erfiða byrjun.

Áttunda umferð fer fram í dag. Þá teflir Hjörvar við rússneska stórmeistarann David Paravyan (2642).

Nánar má lesa um gang umferðar gærdagsins á Chess.com.

108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.

- Auglýsing -