Þungt hugsi Hjörvar Steinn við taflið í Riga. — Morgunblaðið/Heimasíða FIDE

Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577), var grátlega nálægt sínum þriðja sigri í röð þegar hann mætti rússneska stórmeistarann, David Paravyan (2642) í áttundu umferð FIDE Grand Swiss-mótinu sem fram fór í dag. Hjörvar hafði hvítt og upp kom þekkt teórísk staða í Grunfeldsvörn. Paravyan tefldi mjög hratt og Hjörvar lenti í tímapressu. Hinsvegar virtist Hjörvar hafa sitt á hreinu og náði að pína Paravyan í endatafli þar sem hrókur svarts stóð ansi illa. Það kostaði svartan mann en hann reyndist hafa nóg spil til að halda stöðunni gangandi. Að lokum var jafntefli niðurstaðan eftir að Hjörvar hafði reynt á vörn Rússans í hrókur og biskup gegn hróki sem er auðvitað fræðilegt jafntefli. Með smá heppni hefði þessi sigur getað dottið eftir vel útfærða skák hjá Hjörvari.

Paravyan þessi er sterkur skákmaður og hann átti eina af mögnuðustu skákum síðustu ára árið 2018. Sjón er sögu ríkari!

Níunda umferð fer fram á morgun. Þá mætir Hjörvar indverska ungstirninu og stórmeistarann D Gukesh (2640) og stýrir svörtu mönnunum.

Alireza Firouzja er í banastuði og hefur vinningsforskot á næstu menn. Hann er nánast búinn að tryggja sig inn á næsta Áskorendamóti. Spennan um hver fylgir honum er hinsvegar mikil!

Nánar má lesa um gang umferðar dagsins á Chess.com.

108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.

- Auglýsing -