Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) varð aftur að gera sér jafntefli að góðu í 9. umferðinni á Grand Swiss mótinu í Riga eftir vel teflda skák þar sem hann í raun yfirspilaði andstæðing sinn. Indverska ungstirnið D Gukesh (2640) stýrði hvítu mönnunum en fékk lítið úr byrjuninni. Hjörvar hafði sitt á hreinu og bætti stöðuna jafnt og þétt og endaði loks á að hafa mikla stöðuyfirburði. Líklegast gerði Hjörvar allt rétt nema passa upp á tímann. Vinningurinn var nokkurn veginn í boði í eftirfarandi stöðu:
52…f5! hefði verið flottur leikur. Hvítur þarf að gefa drottningu fyrir tvo menn og er þegar búinn að tapa peði. Þess í stað náði Gukesh að komast í endatafl peði undir en með mislita biskupa og hann gat barist fyrir jafnteflinu.
Toppbaráttan er komið í mikið uppnám. Alireza Firouzja sem virtist óstöðvandi tapaði sinni fyrstu skák í 9. umferðinni gegn Fabiano Caruana og nú eru þeir tveir efstir og jafnir ásamt David Howell sem hefur unnið tvær skákir í röð.
Top standings at #GrandSwiss2021 with 2 rounds to go:
1-3. Firouzja (2770), Caruana (2800), Howell (2658) – 6½/9
4-13. Sasikiran (2640), Yu (2704), MVL (2763), Predke (2666), Shirov (2659), Oparin (2654), Anton (2658), Sargissian (2664), Sevian (2654), Vitiugov (2727) – 6/9 pic.twitter.com/P5f758fmI7— International Chess Federation (@FIDE_chess) November 5, 2021
Nánar má lesa um gang níundu umferðar á Chess.com.
Í 10. og næstsíðustu umferð mætir Hjörvar stórmeistaranum Vladislav Kovalev (2634) sem teflir undir fána FIDE en hann var áður „á mála“ hjá Hvítrússum. Á toppnum fær Firouzja hvítt á Howell og MVL mætir Caruana á öðru borði.
108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)














