Ian Nepomniachtchi (2782) hélt tryggð við spænska leikinn í sjöunda skák heimsmeistaraeinvígis hans og Magnúsar Carlsen (2855) í dag. Að þessu sinni breytti Rússinn út af í tíunda leik þegar hann lék 10. d3.
Satt best að segja komst áskorandinn lítt áfram gegn heimsmeistaranum sem virðist hafa byggt ákveðið virki gegn spænskum leik Rússans. Jafntefli samið í steindauðu hróksendatafli eftir 41 leik
Today, play has been very similar to Magnus’s previous games with the black pieces. He again chose a system where he may be slightly worse, yet solid. The idea seems to be to equalize slowly but surely, avoiding forcing lines. #CarlsenNepo
— Erwin l’Ami (@erwinlami) December 4, 2021
Hér er skákin í heild með skýringum Sam Shankland.
Áttunda skákin fer fram fram á morgun. Þá hefur sá norski hvítt. Mun kné fylgja kviði með hvítu mönnunum.
- Heimasíða einvígisins
- Beinar útsendingar (FIDE) – Anand og Muzychuk
- Beinar útsendingar (Chess24) Polgar og Giri
- Beinar útsendingar (Chess.com) Caruana og Yifan
- Beinar útsendingar (Chess24) Howell og Houska

















