Guðjón Ingvi Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skáksambands íslands er látinn, 82 ára að aldri. Guðjón Ingvi var framkvæmdastjóri SÍ þegar einvígi aldarinnar fór fram og var í stjórn SÍ 1969-73.
Ritstjóri kynntist Guðjón Ingva lítils háttar á síðari árum. Við tókum tal þegar hann mætti á skákmót eins og Reykjavíkurskákmótið í Hörpu, þar sem hann mætti á hverju ári, og EM landsliða í Laugardalshöll.
Ákaflega viðkunnanlegur maður með brennandi áhuga á skák. Einstaklingur sem var í eldlínunni í mesta ævintýri íslenskrar skákhreyfingar fyrr og síðar.
Aðstandendum votta ég samúð mína.
- Auglýsing -

















