Sterkasta hraðskákmót ársins, Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák, fer fram á morgun. Nánast allir sterkustu skákmenn landsins taka þátt og meðal keppenda eru sjö stórmeistarar og fimm alþjóðlegir meistarar.
Stórmeistararnir sjö eru: Hjörvar Steinn Grétarsson, Helgi Áss Grétarsson, Jóhann Hjartarson, Þröstur Þórhallsson, Helgi Ólafsson, Guðmundur Kjartansson og Bragi Þorfinnsson.
Þátt taka einnig Íslandsmeistarar ungmenna sem og landsliðshópur 25 ara og yngri. Yngri skákmennirnir munu án ef blanda sér í toppbaráttuna. Fremstur þar í flokki er Vignir VatnarStefánsson, sem er fjórði í stigaröð keppenda.
Friðriksmótið fer aftur fram í raunheimum en í fyrra fór það fram á netinu vegna heimsfaraldurins. Mótið ber þó smá keim af heimsfaraldrinum því að þessu sinni verður mótið heldur fámennara en í gegnum tíðina vegna samkomutakmarkana. U.þ.b. 40 keppendur taka þátt í ár.
Boðið verður upp á beinar útsendingar á fjórum efstu borðunum og Ingvar Þór Jóhannesson verður með þráðbeinar lýsingar frá skákstað.
Tefldar verða ellefu umferðir með umhugsunartímanum 3+2.
Nánar um hvernig best sé að fylgjast með kemur á Skák.is á morgun.















