Á glæsilegri uppskeruhátíð Fjölnis í Keiluhöllinni í Egilshöll voru hin ungu og efnilegu skákmenn Sigrún Tara Sigurðardóttir og Tristan Fannar Jónsson valin skákkona og skákmaður Fjölnis 2021.
Sigrún Tara er 9 ára gömul og nýkrýndur Íslandsmeistari stúlkna í skák í flokki U10 auk þess að vera í skáksveit Rimaskóla sem sigraði á Íslandsmóti grunnskóla 1. – 3. bekkur í febrúar sl. og er því tvöfaldur Íslandsmeistari. Á Reykjavíkurmóti grunnskóla 11. okt. sl gerðist það í fyrsta sinn að stúlknasveit sigraði í opnum flokki í 4. – 7. bekk, þ.e. stúlknasveit Rimaskóla. Í þessari vösku sveit var Sigrún Tara í fararbroddi ásamt fjórum öðrum skólasystrum sínum.
Tristan Fannar Jónsson er tilnefndur íþróttamaður Skákdeildar Fjölnis fyrir árið 2021. Þessi 8 ára gamli efnispiltur er annar tveggja af strekustu skákmönnum landsins fæddir árið 2013. Hann leiddi sveit Rimaskóla sem varð Íslandsmeistari grunnskóla 1. – 3. bekkur í febrúar sl. Hann leiddi einnig sigursveit Rimaskóla á Reykjavíkurmóti grunnskóla 1. – 3. bekkur nú í haust. Á Íslandsmóti Ungmenna á Akureyri þann 30. okt. endaði kappinn í 2. sæti í yngsta aldursflokki mótsins.















