Það er gríðarleg spenna fyrir lokaátök Unglingameistaramóts Íslands – Meistaramót Skákskólans sem fram fer í dag. Birkir Ísak Jóhannsson (2088) og Arnar Milutin Heiðarsson (2048) eru efstir og jafnir með 3½ vinning að loknum fjórum umferðum.

Símon Þórhallsson (2275), Björn Hólm Birkisson (2070), Stephan Briem (2023) Alexander Oliver Mai (2060) og Gunnar Erik Guðmundsson (1883) eru í 3.-7. sæti með 3 vinninga.

Óvænt úrslit urðu í fjórðu umferð í gær þegar Birkir Ísak vann Vigni Vatnar Stefánsson (2457) og þegar Gunnar Erik lagði Hilmi Frey Heimisson (2322) að velli.

Tvær síðustu umferðirnar verða tefldar í dag.  Í fyrri umferð dagsins mætast meðal annars:

  • Birkir Ísak (3½) – Arnar Milutin (3½)
  • Alexander Oliver (3) – Símon (3)
  • Björn Hólm (3) – Gunnar Erik (3)
  • Stephan (3) – Bárður Örn (2½)
  • Sverrir (2½) – Vignir (2½)

Fyrri umferð dagsins hefst kl. 11 og sú síðari kl. 17.

 

- Auglýsing -