Heimsmeistaramótið í at- og hraðskák fer fram dagana 26.-30. desember í Varsjá í Póllandi. Nánast allir sterkustu skákmenn heims taka þátt. Því miður tekur enginn Íslendingur þátt í
Meðal keppenda eru Magnús Carlsen, Hikaru Nakamura, Alireza Firouzja, Fabiano Caruana, MVL, Anish Giri, Alexander Grischuk og Daniil Dubov.
Merry Christmas from Warsaw! pic.twitter.com/pnbz66wL5p
— Hikaru Nakamura (@GMHikaru) December 24, 2021
Í kvennaflokki tefla meðal Aleksandra Goryachkina, Kateryna Lagno. Anna Muychuk, Antoanet Stefana og Alexandra Kosteniuk.
Því miður vantar kínverska skákmenn í mótið.
Dagana 26.-28. desember fer fram HM í atskák (15+10) þar sem tefldar eru 13 umferðir í opnum flokki en 11 umferðir kvennaflokki. Teflmennskan hefst kl. 14 alla dagana
Dagana 29.-30. desember fer fram HM í hraðskák (3+2) þar sem tefld er 21 umferð í opnum flokki en 17 umferðir í kvennaflokki. Taflmennskan hefst kl. 14 fyrri daginn en kl. 13 þann seinni.
Hvernig er best að fylgjast með?
Fyrir þá sem hafa NRK þá er hægt að fylgjast með mótinu beint þar.
Chess24 býður upp á útsendingar í umsjón Peter Leko og Jan Gustafsson.
Sjálfsagt verða fleiri áhugaverðir kostir til að fylgjast með mótinu og verður þeim bætt við í fréttina.














