MC þurfti mikið að hafa fyrir sigrinum í fyrstu umferð. Mynd: Anna Shtourman/FIDE

Heimsmeistaramótið í atskák hófst í gær í Varsjá í Póllandi.

Þegar fimm fyrstu umferðunum af 13 er lokið eru norski heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2842) , fulltrúi heimamanna, Jan-Krzysztof Duda (2801) og Georgíumaðurinn Baadur Jobava (2679) efstir og jafnir með 4½ vinning.

Firouzja er til alls líklegur. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

Þrettán keppendur hafa 4 vinninga og þar á meðal eru fransk/íranska ungstirnið Alireza Firouzja (2656) og rússneski áskorandinn Ian Nepomniachtchi (2798).

Staðan á Chess-Results

Alexandra Kosteniuk er í 1.-2 sæti eftir 4 umferðir. Mynd: Mark Livshitz/FIDE.

Fjórum umferðum er lokið í kvennaflokki. Þar eru rússnesku skákkonurnar Valentina Gunina (2499) og Alexandra Kosteniuk (2515) efstar með fullt hús vinninga.

Staðan á Chess-Results

Ítarleg umfjöllun á Chess.com.

HM í atskák heldur áfram í dag með 4 umferðum í bæði opnum flokki sem og kvennaflokki. Mótinu lýkur svo á morgun. Teflt er eftir tímamörkunum 15+10. Taflmennskan í dag hefst kl. 14.

Dagana 29.-30. desember fer fram HM í hraðskák (3+2) þar sem tefld er 21 umferð í opnum flokki en 17 umferðir í kvennaflokki. Taflmennskan hefst kl. 14 fyrri daginn en kl. 13 þann seinni.

Útsendingar Chess24 eru í umsjón Peter Leko og Jan Gustafsson.

Fyrir þá sem hafa aðgang að NRK í gegnum Símann eða Vodafone þá er hægt að fylgjast með mótinu beint þar.

- Auglýsing -