Esipenko-Carlsen. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel Chess.

Eitt allra skemmtilegasta mót hvers árs, Tata Steel mótið, hófst í gær í Sjávarvík (Wijk aan Zee) í Hollandi í gær. Sem fyrr er mótið skemmtileg blanda allra sterkustu skákmanna heims og rísandi stjarna sem oft setja svip sinn á mótið. Fjórtán keppendur tefla í meistaraflokki (Masters) og fjórtan í áskorendaflokki (Challengars). Áhugamannaflokkarnir fara ekki fram í ár vegna heimsfaraldurins.

Fjórum skákum í meistaraflokki lauk með jafntefli. Magnús Carlsen (2865) gerði stutt jafntefli við Rússann unga Andrei Esipenko (2714). Jan-Krzytof Duda (2760), Sanotsh Vidit (2727) og Jorden Van Foreest (2702) unnu sínar skákir. Duda vann Richard Rapport (2763), Vidit lagði Sam Shankland (2708) og Van Forreest hafði betur gegn Nils Grandelius (2672).

Nánari umfjöllun á Chess.com.

Önnur umferð fer fram í dag. Carlsen mætir þá Anish Giri (2772). Önnur áhugaverð er meðal annars skák Rússanna Sergei Karjakin (2743) og Daniil Dubov (2720). Sá fyrrnefndi gagnrýndi Dubov harðlega fyrir aðstoða MC í heimsmeistaraeinvíginu gegn Nepo.

- Auglýsing -