Anish Giri vann án taflmennsku í gær. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel Chess

Heimsmeistarinn norski, Magnús Carlsen (2865) er kominn á toppinn á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík. Hann vann sannfærandi sigur á indverska undrabarninu Praggnanandhaa (2612). Í gær. Auk hans unnu Jorden Van Foreest (2792), Fabiano Caruana (2792) og Anish Giri (2772) sínar skákir. Sá síðastnefndi án taflmennsku.

Enn hafa keppendur alfarið sloppið við Covid. Þjálfarar Caruana og Pragga höfðu hins báðir fengið veiruna auk einhverja starfsmanna. Í gær gerðist það svo að einn úr hópi Dubov greindist. Mótshaldarar báðu Rússann að tefla með grímu á meðan beðið eftir niðurstöðu úr PCR-prófi til að vernda andstæðinginn, Anish Giri. Því neitaði Dubov og mætti ekki til leiks.

Sergey Karjakin tók afstöðu með landa sínum í gær.

Nánari umfjöllun má finna á Chess.com.

Áttunda umferð fer fram í dag.  Carlsen teflir við Sam Shankland (2708), Mamedyarov við Pragga. Það verður spennandi að sjá hvort Dubov (2720) mæti til leiks gegn Duda í dag.

- Auglýsing -