Skákdagurinn, afmælisdagur Friðriks Ólafssonar, verður haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 26. janúar. Að því tilefni ætlar að Skáksambandið að standa fyrir skákmótahaldi á chess.com. Þá fagnar meistarinn síungi 87 ára afmæli.
Fyrir þá yngstu (2013 og síðar)
Klukkan 17:00 verður haldið mót fyrir 1.-3. bekk (fædd 2013 eða síðar). Tefldar verða 6 umferðir með tímamörkunum 4+2.
Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin (úttektir hjá Skákbúðinni). Auk þess nokkrir happdrættisvinningar! Verðlaun fyrir efsta strák og efstu stelpu á hverju aldursári.
Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt:
- Búa til aðgang á www.chess.com (frítt)
- Gerast meðlimur í hópnum“Skákkrakkar 1.-3. bekkur”: https://www.chess.com/club/skakkrakkar-1-3-b
- Skrá sig á mótið sem hægt er að gera allt að 60 mínútum áður en það hefst. (https://www.chess.com/play/tournament/2905742)
Mælt eindregið með því nota venjulega borðtölvu/fartölvu. Chess.com-appið virkar ekki eins vel í mótum.
Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin: Úttekir hjá Skákbúðinni!
Nokkrir heppnir keppendur fá einnig úttektir.
Fyrir alla grunnskólanemendur (2006 og síðar)
Klukkan 18:30 verður skákmót fyrir þá sem eru í grunnskóla (fædd 2006 eða síðar). Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 3+2.
Tengill á mótið fyrir grunnskólann: https://www.chess.com/play/tournament/2905741
Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin (úttektir hjá Skákbúðinni). Auk þess nokkrir happdrættisvinningar! Verðlaun fyrir efsta strák og efstu stelpu á hverju aldursári.
Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt:
- Búa til aðgang á chess.com (frítt)
- Gerast meðlimur í hópnum “Skólanetskák”: https://www.chess.com/club/skolanetskak
- Skrá sig á mótið sem hægt er að gera allt að 60 mínútum áður en það hefst (https://www.chess.com/play/tournament/2905741)
Mælt eindregið með því nota venjulega borðtölvu/fartölvu. Chess.com-appið virkar ekki eins vel í mótum.
Fyrir þá sem vilja tefla á Reykjavíkurhraðskákmótinu í Laugardalshöllinni!
Klukkan 20:30 fer fram hraðskákmót 3+2 á Chess.com. Í boði verða sæti fyrir efstu menn á Reykjavíkurhraðskákmótið sem fram fer í Laugardalshöll á laugardaginn. Þar er keppnisréttur takmarkaður vegna samkomutakmarkana.
Þar sem skráning í Reykjavíkurhraðskákmótið rennur út kl. 16:00 á Skákdaginn verður ljóst hversu þá ljóst hversu mörg sæti eru í boði á Skákdagsmótinu til að fylla upp í 40-44 keppendur.
Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2. Oddastig chess.com gilda séu menn jafnir.
Til að taka þátt í Skákdagsmótinu þarf að vera meðlimur í Team Iceland á Chess.com. Upplýsingar um hópinn hér.
- Búa til aðgang á chess.com (frítt)
- Gerast meðlimur í hópnum“Team Iceland“. https://www.chess.com/club/team-iceland
- Skrá sig á mót sem hægt er að gera allt að 60 mínútum áður en það hefst. (https://www.chess.com/play/tournament/2905902).
Mælt eindregið með því nota venjulega borðtölvu/fartölvu. Chess.com-appið virkar ekki eins vel í mótum.














