Í dag á fyrsti stórmeistari Íslands afmæli og Skákdagur Íslands haldinn hátíðlegur. Friðrik Ólafsson er 87 ára í dag og er honum hér með óskað hjartanlega til hamingju með daginn!

Friðrik Ólafsson á glæsilegan skákferil að baki. Á sjötta áratug síðustu aldar varð hann þjóðhetja fyrir skáksigra sína og komst í hóp bestu skákmanna heims. Á ferli sínum lagði hann fjóra heimsmeistara í skák að velli.

Í tilefni dagsins efndi Skáksambandið til framleiðslu á myndbandi um skákferil Friðriks. Myndbandið hentar öllum aldurshópum!

Ýmis skákmót fara fram á chess.com í dag, sjá nánar hér; https://skak.is/2022/01/24/skakdagsmot-fyrir-alla-a-chess-com-a-skakdaginn-taekifaeri-a-keppnisretti-a-reykjavikurhradskakmotid/

- Auglýsing -