Skák er hluti af Reykjavíkurleikunum í ár (Reykjavik International Games). Landskeppni Íslands, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar verður á RÚV sunnudaginn 30. janúar 2021 milli kl. 13 og 16. Dregið var um töfluröð í gær og mætir Ísland Svíðþjóð í undanúrslitum. Áhorfendur velkomnir á staðinn en miði kostar 2.500. Hægt er að þar að fylgjst bæði með skákmönnum og skákunum á risaskjá. Teflt er í sal 1 og gengið inn um a-inngang.
Teflt verður í beinni útsendingu á RÚV. Útsendingin verður í umsjón Ingvars Þórs Jóhannessonar og Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur.
Um er að ræða útsláttarkeppni. Þátt taka auk Íslands, Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Karl og kona eru í hverju liði.
Tefldar verða tvær atskákir (10+5) í hverri viðureign, samtals fjórar skákir. Verði jafnt 2-2 verður teflt til þrautar með bráðabanafyrirkomulagi. Dregið verður um hvort bráðabani verði á karla- eða kvennaborðinu.
Fulltrúar þátttökuþjóðanna eru:
Ísland
Fulltrúar Íslands eru stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson og Lenka Ptácníková stórmeistari kvenna.
Hjörvar er stigahæsti skákmaður landsins og núverandi Íslandsmeistari og Lenka er þrettánfaldur Íslandsmeistari kvenna og stigahæsta skákkona landsins.
Danmörk
Fulltrúar Dananna eru stórmeistarinn Mads Andersen og Ellen Fredericia Nilssen FIDE-meistari kvenna.
Mads er þrefaldur danskur meistari (síðast 2020) og fastamaður í landsliði Danmerkur.
Ellen er aðeins liðlega tvítug. Hún vann danska kvennameistaramótið þegar hún var aðeins 15 ára. Í fyrra varð hún unglingameistari Danmerkur (u20) í opnum flokki og þar með fyrsta konan til að vinna þann titil.
Noregur
Norsku fulltrúarnir eru stórmeistarinn Lars Oskar Hauge og Monika Machlik.
Lars er nýjasti stórmeistari Noregs, sá sautjándi. Hann tefldi með Noregi á EM landsliða í fyrra.
Monika er 24 ára en hefur engu síðar verið fastamaður í norska kvennalandsliðinu síðan 2013.
Svíþjóð
Fulltrúar Svíþjóðar eru alþjóðlegi meistarinn Jung Mun Seo og Viktoria Johansson.
Jung kom inn í liðið með mjög skömmum fyrirvara vegna Covid-smits þess sem upphafalega átti að tefla. Hann er alþjóðlegur meistari og núverandi skákmeistari Svíþjóðar.
Viktoria er aldurforsetinn, 47 ára. Hún hefur verið fastamaður í sænska landsliðinu síðan 1990 og hefur teflt 12 sinnum fyrir hönd þjóðar sinnar. Hún varð Norðurlandameistari kvenna 1993.
- Chess-Results
- Direct on RUV (starts at 14:00 (CET)
- Live Games
- FollowChess
- Chess.com
- Chessbomb















