Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson er orðinn einn efstur með fullhús, 4 af 4 eftir langan og strangan tvöfaldan dag á Skákþingi Reykjavíkur. Hjörvar lagði hinn unga Gunnar Erik Guðmundsson í fyrri umferðinni með hvítu og Jóhann Ingvason í seinni umferðinni.

Helsti keppinautur Hjörvars (á blaði), Davíð Kjartansson, vann sína skák í fyrri umferðinni en tók hjásetu í 4. umferðinni. Davíð hefur því 3,5 vinning eins og Arnar Milutin Heiðarsson og Gauti Páll Jónsson.

Arnar lagði Sigurbjörn Björnsson í 3. umferðinni í sviptingamikilli skák. Arnar gaf drottningu fyrir hrók og mann og fékk mjög góðar bætur og tók yfir skákina. Í endataflinu missti Sigurbjörn svo af glæsilegri pattleið til að bjarga jafntefli og Arnar náði að sigla vinningnum heim. Í fjórðu umferð þurfti Arnar einnig að sýna seiglu. Skiptamundur tapaðist nánast bótalaust en aftur sýndi Arnar mikið baráttuþrek og vann í lengstu skák umferðarinnar.

Gauti Páll Jónsson þurfti einnig mikið baráttuþrek gegn Gunnari Erik. Eins og Arnar var hann skiptamun undir en náði að vinna báða hróka Gunnars í lokin, annan gefins en hinn með smá taktík.

5. umferð fer fram miðvikudaginn 9. febrúar klukkan 18:30. Fréttin verður uppfærð þegar pörun liggur fyrir.

Skákir í beinni

Chess-Results

- Auglýsing -