Þeir félagar Hilmir Freyr Heimisson og Alexander Oliver Mai sitja nú að tafli í IM flokki í Serbíu þar sem 9 umferðir eru tefldar á 7 dögum.
Hilmir er í banastuði og náði sér í 1,5 vinning af 2 í tvöfaldri umferð dagsins. Hann er enn efstur með 5 vinninga úr skákunum 6 og hefur þar að auki teflt við nægjanlega marga titilhafa með IM titil eða betra og þarf aðeins einn titilhafa til viðbótar í lokaumferðunum þremur. Árangur Hilmis samsvarar 2513 skákstigum hingað til!
Í skákum dagsins gerði Hilmi jafntefli við IM Toni Lazov (2388) en vann Rússann Konstantin Andreev (2147).
Alexander gerði tvö traust jafntefli í dag og er í fínum stigagróða á mótinu hingað til með +11 stig.
Vignir Vatnar Stefánsson átti að vera að tefla í GM flokki í Serbíu en hann lenti í hremmingum á Ítalíu en er nú loks kominn til Serbíu og ætti að ná næsta móti sem hefst 14. febrúar.
Skákir Hilmis Freys í dag
Skákir Alexanders í dag
















