Hannes að tafli

Eftir mikla spennu varð það stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson sem hafði sigur á Temprumóti TG. Hannes endaði mótið með 7 vinninga af 9 mögulegum, jafn Halldóri Grétari Einarssyni að vinningum en Hannes Hlífar hafði betur á oddastigum.

Miklar sviptingar voru á mótinu. Stjarna fyrri hlutans, Gauti Páll Jónsson sem lagði alla stórmeistarana þrjá að velli á fyrri keppnisdegi, náði sér engan veginn á strik í síðustu fjórum umferðunum og heltist úr lestinni.

Benedikt Briem tók U17 verðlaunin og Guðlaug Þorsteinsdóttir kvennaverðlaunin.

Tefldar voru 9 umferðir af atskákum með 15 mínútum á skákina auk 5 sekúndna í viðbótartíma.

Nánar um úrslit á Chess-Results.

Chess-Results

- Auglýsing -