Mynd frá Íslandsmót skákfélaga okt. 21.

Æfingaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið á Kex Hostel, laugardaginn 19 febrúar kl. 14:00.

Nú styttist í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga í mars og verður þetta góð æfing fyrir þá sem tefldu fyrir félagið á Íslandsmóti skákfélaga október sl.

Allir félagar eru velkomnir og þetta skákmót er opið fyrir alla.

Tefldar verða 8 umferðir með 4 + 2 mín.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Verðlaun á Æfingarskákmótið:

1 sætið. Gull peningur + Skákstríð við Persaflóa.

2 sætið. Silfur peningur + Skákarfur Aljekins II.

3 sætið. Bronze peningur + Heimsbikarmót Stöðvar 2, 1988.

Allir velkomnir bæði félagar og aðrir skákmenn.

Skráningarform er inn á heimasíðu félagsins. Æfingaskákmót Vinaskákfélagsins

Þegar skráðir skákmenn: http://chess-results.com/tnr610268.aspx?lan=1

Kv. Stjórn Vinaskákfélagsins.

- Auglýsing -