Hilmir Freyr Heimisson kláraði alþjóðlegt mót í Serbíu í dag með glæsibrag. Hilmir varð efstur á mótinu með 7 vinninga af 9 ásamt hinum unga og efnilega Nikolay Averin. Það sem er hinsvegar öllu mikilvægara er að með árangrinum tryggði Hilmir Freyr sér lokaáfanga sinn að alþjóðlegum meistaratitli.

Hilmir var í kjörstöðu fyrir lokaumferðina, efstur og með hvítt gegn stórmeistaranum Dejan Pikula (2337). Pikula hafði ekki að neinu að keppa í raun og því var hann ekkert að rugga bátnum þegar Hilmir bauð skiptan hlut snemma tafls. Jafnteflið mikilvæga komið í hús og titillinn í höfn hjá Hilmi, væntanlega mikill léttir og ánægja þar á bænum! 38 elóstig í hús og árangur upp á 2479 elóstig.

Hilmir hafði áður náð tveimur áföngum og náð elóstigum sínum yfir 2400 stigin en aðeins þarf að ná því takmarki einu sinni. Allt er því til staðar til að Hilmir verði útnefndur næsti alþjóðlegi meistari Íslendinga á næsta FIDE þingi.

Alexander Oliver Mai kláraði sína skák með sigri í dag og skilar því 8 stigum í gróða á þessu móti.

Framundan eru tvö mót til viðbótar hjá þeim félögum í Serbíu og Vignir Vatnar bætist nú í hópinn eftir smá hremmingar við ferðalagið til Serbíu. Vignir tekur þátt í stórmeistaraflokki sem hefst á morgun en Hilmir og Alexander fara væntanlega í áframhaldandi stigaveiðar og reynslubanka herferð á morgun!

Skákin stutta, en mikilvæga

Sigurskák Alexanders:

Chess-Results

- Auglýsing -