Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2548) heldur uppteknum hætti á Skákþingi Reykjavíkur og er enn með fullt hús eftir sex umferðir.
Í sjöttu umferðinni lagði Hjörvar Jóhann Jónsson (1763) að velli. Hjörvar stýrði hvítu mönnunum og í miðtaflinu tapaði svartur of miklum tíma með mennina og lenti í vandræðum með drottninguna inni í herbúðum hvíts. Hjörvar fékk í kjölfarið nánast óstöðvandi sókn.

Næstu menn eru 1,5 vinningi á eftir Hjörvari. Davíð Kjartansson (2304) stoppaði hinn funheita Arnar Milutin Heiðarsson (2054). Þeir hafa báðir 4,5 vinning eftir þessi úrslit sem og Sigurbjörn Björnsson sem lagði Gauta Pál Jónsson að velli í umferðinni.
Sjöunda umferðin fer fram miðvikudaginn 16. febrúar og hefst klukkan 18:30.
- Auglýsing -















