Alþjóðlegi skákmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson náði sínum fyrsta stórmeistaraáfanga á móti í Dublin í byrjun janúar. Svo vitnað sé í Vigni sjálfan þá er stefnan sett á að „hamra járnið meðan heitt er“ og er mikil taflmennska framundan.
Nú í febrúar tekur Vignir þátt í tveimur mótum í Serbíu auk þess sem fleiri mót eru á næstu mánuðum sem hann hefur hug á að skoða þátttöku í.
Skáksamband Íslands og Skákdeild Breiðabliks hafa stutt vel við bakið á Vigni en bjóða nú einstaklingum að slást í hópinn með frjálsum framlögum í styrktarsjóð sem nýttur verður til að styðja við taflmennsku Vignis.
Þess má geta að Skáksamband Íslands og Skákdeild Breiðabliks hafa bæði sótt um vera á almannaheillaskrá. Framlög til félaga á almannaheillaskrá eru frádráttabær frá skatti.
Tengill á skákstyrktarsjóð Vignis.
















