Fjórum umferðum af níu er lokið á alþjóðlega mótinu í Kragerö í Noregi. Guðmundur Kjartansson er efstur íslensku keppendanna í titlaflokknum. Tvær umferðir fara fram í dag og hófst sú fyrri kl. 9:15.
Titlaflokkurinn
Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2450) hefur 3 vinninga.
FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson (2245) hefur 2½ vinning. Hann gerði jafntelfi við alþjóðlega meistarann Erlend Mikalsen (2368) í gær.
Stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková (2173) og Gauti Páll Jónsson (2048) hafa 2 vinninga.
Aðrir hafa minna en 10 íslenskir skákmenn taka þátt.
Stigaflokkurinn
Adam Omarsson (1546), Kristján Dagur Jónsson (1797) Benedikt Þórisson (1790), Ingvar Wu Skarphéðinsson (1664) hafa 3 vinninga.
Árni Ólafsson (1397) hefur 2½ vinning.
Iðunn Helgadóttir (1444) hefur 2 vinninga.
Aðrir hafa minna en 8 íslenskir skákmenn taka þátt.
- Heimasíða mótsins
- Norskt Chess-Results
- Beinar útsendingar (titlaflokkur)
- Beinar útsendingar (stigaflokkur)















