Efsta liðið í úrvalsdeild Íslandsmóts Skákfélaga, Taflfélag Garðabæjar, styrkti stöðu sína með sigri yfir Skákdeild Breiðabliks, 6:2, á fimmtudagskvöldið. Þá hófst seinni hluti keppninnar en TG á í harðri keppni við sveit Taflfélags Reykjavíkur en sveitirnar munu mætast í 8. umferð. Önnur úrslit í 6. umferð urðu á þann veg að TR vann SA, 5½:2½, og Víkingaklúbburinn vann Skákdeild Fjölnis, 5:3.
Fyrirkomulag úrvalsdeildar er með alveg nýju sniði en sex lið tefla tvöfalda umferð. Staðan eftir viðureignir sjöttu umferðar:
1. Taflfélag Garðabæjar 11 stig (33 v. af 48). 2. Taflfélag Reykjavíkur 9 stig (30 v.). 3. Skákdeild Fjölnis 6 stig (24½ v.). 4. Víkingaklúbburinn 5 stig (21½ v.). 5. Skákdeild Breiðabliks 4 stig (17½ v.). 6. Skákfélag Akureyrar 1 stig (17½ v.).
Í gærkvöldi hófst svo keppni í öðrum deildum.
Vignir Vatnar í sviðsljósinu
Hinn 19 ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson vann glæsilegan sigur á alþjóðlega mótinu í Arendjelovac í Serbíu sem lauk um síðustu helgi. Vignir fékk sjö vinninga af níu mögulegum og varð einn efstur á mótinu. Hann náði með því öðrum áfanga sínum að stórmeistaratitli og á ekki mikið eftir til að ná 2.500 elo-stigum, sem er skilyrði þess að hljóta útnefninguna. Vignir teflir á 1. borði fyrir skákdeild Breiðabliks á Íslandsmótinu. Hann fékk tvo vinninga af fimm í fyrri hlutanum en gæti með góðum úrslitum náð lokaáfanganum á Íslandsmótinu. Skák hans við Hjörvar Stein Grétarsson á fimmtudagskvöldið lauk með jafntefli.
Undanhald er ekki alltaf slæmt
Það er fremur óvenjulegt að öflugustu skákmenn verði að játa sig sigraða í 20 leikjum eða þar um bil. Besti Pólverjinn lenti illa í því um daginn:
Airthings Masters 2022
– Sjá stöðumynd –
Magnús Carlsen – Jan-Krysztof Duda
Hvítur leikur og vinnur.
Staðan á borðinu lítur eitthvað kunnuglega út og virðist hafa komið upp úr drekaafbrigði sikileyjarvarnar. Strangt til tekið er það ekki raunin þó að svarta staðan hafi tekið á sig yfirbragð „Drekans“. Magnús hafði eins og stundum áður vikið frá alfaraleiðum og andstæðingurinn gáði ekki að sér. Í stöðunni þarf stjórnandi svarta liðsaflans að hafa áhyggjur af kóngsstöðunni, en er ekki of djúpt í árinni tekið að halda því fram að hvítur geti unnið með næsta leik? Leikfléttur byggjast yfirleitt ekki á undanhaldi en hvernig er hægt að skilgreina lykilleikinn á annan hátt? Upphafsleikir skákarinnar féllu þannig:
1. e4 c5 2. Rc3 g6 3. d4 cxd4 4. Dxd4 Rf6 5. Be3 Rc6. Dd2 d6 7. f3 Bg7 8. Rge2 Be6 9. Rf4 0-0 10. h4 Re5 11. h5 Bc4 12. Hxg6 hxg6
– og þá erum við komin að stöðumyndinni. Hvítur lék 13. Rd3! og svartur er varnarlaus að mati „vélanna“. Framhaldið varð…
13. … Be6 14. Bh6 Rh5 15. Bxg7 Kxg7
16. Hxh5!
Kunnuglegt þema í drekaafbrigðinu.
16. … gxh5 17. Rxe5 dxe5 18. Dg5+ Kh7 19. Dxh5+ Kg8 20. Bd3!
– Kóngurinn er á leið til e2 og svartur er óverjandi mát.
Duda gafst upp.
Airthings-mótaröðin fer fram á netinu, undanrásir og síðan einvígi með útsláttarfyrirkomulagi. Tefldar eru at-skákir með tímamörkunum 15:10. Magnús Carlsen vann fyrsta mótið með því að vinna Ian Nepomniachtchi í stórskemmtilegu úrslitaeinvígi, 4½:2½.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 5. mars 2022.














